Efe. 1:17 Ég bið Guð Drottins vors Jesú Krists, föður dýrðarinnar, að gefa yður anda speki og opinberunar, svo að þér fáið þekkt hann.
22.03.2007 11:39:06 / gbjorn

Sæl öll sömul

Hæ, það er orðið mjög langt síðan ég skrifaði hér síðast.  Það er samt um að gera að skrifa eitthvað hér.  Ég vil samt taka það fram að ég er bráðlega að fara að færa síðuna inn á www.myspace.com/gudbjorn1 þar sem ég get sett alls konar efni inn þar.  Það verður einungis Drottni til dýrðar.  Þið spurjið eflaust hvað hefur verið að gerast í lífi mínu og margir haldið að ég hafi fallið frá þótt ég tók mér hlé frá kirkjunni Fíladelfíu.  Það voru margir hlutir sem gerðu það að verkum og ég ætla ekki að fara nánar út í þau mál vegna þess að þau eru mjög persónuleg en ég get sagt ykkur það að ég er alls ekki fallinn frá Drottni.  Drottinn hefur verið að fæða ýmis konar hluti sem verður væntanlega sett í bók sem verður kennsluefni fyrir trúaðar og ófrelsaða.  Ég því miður má ekki útlista það vegna þess að þetta er mjög djúpt efni.  Ég mun hins vegar skrifa eitthvað á nýju vefsíðunni minni.  Svo eru aðrir hlutir sem Guð hefur verið að leggja á hjarta mitt, meðal annars að fræða og kenna og prédika.  Guð er svo góður.  Einnig er ég nú fluttur til Njarðvíkur.  Guð blessi ykkur öll og veri með ykkur. 

 

Guðbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 16:47:42 / gbjorn

Hæhæ

Vá, það er orðið allt of langt síðan að ég skrifaði.  Það eru miklir hlutir að gerast í lífi mínu og það er ekki hægt að útskýra það.  Það er yndislegt að lifa og að vera með í Konungsríki Guðs.  Það eru margar spurningar sem kannski fólk spyr sig að og þá sérstaklega þau sem eru í kirkjunni og ég ætla aðeins og láta ykkur vita að ég mun koma þegar ég kem.  Svo einfalt er það, Guð hefur tekið mig í gegn og hefur verið að lækna hjarta mitt og græða sár mín og einnig að yrkja þær gjafir sem Hann hefur gefið mér.  Ég fór ekki til Írlands í október og ég veit núna að það var ástæða fyrir því.  Guð vill ekki að við förum á undan Honum.  Það er svo mikilvægt mín elskuðu vinir og félagar að við verðum að passa okkur á því að fara ekki á undan Guði.  Núna hef ég tekið stefnuna á menntabrautina þ.e.a.s. ætla að fara í háskóla Íslands næsta haust og fer þá í hugbúnaðarverkfræði.  Ég vil láta vita að mér líður vel og allt gengur eins og í sögu.  Drottinn hefur verið að græða landið í kringum mig.  Það er ekki slæmt að mennta sig skal ég segja því að það mun hjálpa okkur að ganga í lífinu.  Ég hugsa um þessa menntun sem undirstöðu fyrir mig fjárhagslega undir þá þjónustu sem Guð hefur kallað mann til að gera.  Guð elskar okkur og mun aldrei snúa bak við okkur.  Ég vil líka láta vita að sumir hugsa kannski að vegna þess að ég hef ekki mætt í kirkjuna að ég sé fallinn frá og það er langt í frá.  Jesús er minn Drottinn og Konungur og ég mun þjóna Honum hvert sem ég fer og hvar ég verð.  Ég mun koma þegar ég kem.

Guðbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.04.2006 00:40:11 / gbjorn

Páskar gengnir í garð

Gleðilega Páska

PS:  Bíðið með eftirvæntingu því sem framundan er!!  Þið munuð fá að sjá og lesa hvernig Biblíuskólinn var og hvað gekk á.  Það verður  um hið skemmtilega, leiðinlega, dramatíska, fyndna, orkuríka, erfiðasta, og fleira sem gerðist í Biblíuskólanum, þannig stay tuned.  Ekkert verður sparað.  Svo að sjálfsögðu verður sér færsla um trúboðsferðina.

Guð blessi ykkur 

Guðbjörn


» 2 hafa sagt sína skoðun

05.04.2006 12:26:41 / gbjorn

Tilvísun

Ef eitthvað stendur í vegi fyrir áætlun Guðs t.d.. konur/karlar, eiturlyf, skemmtun, drykkja eða eitthvað annað, klipptu það út úr lífi þínu eins fljótt og mögulegt er.(Þýtt)

 

 



If something is hindering you from GOD’s plan for example women/men, drugs, party, drinking or something else, cut it off from your life as quickly as possible.

 

 



Quote:  Shawn Foster

Guðbjörn


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2006 22:21:10 / gbjorn

Vá, Guð er svo góður að ég get ekki útskýrt það annað en að Drottinn er góður.  Já, ég veit að það er þarna endurtekning en það er bara ekkert hægt að gera annað en að segja hversu góður Guð er.  Ég er alltaf að upplifa það á hverjum deginum og átta mig á því hversu góður Hann er.  Ég hef bætt við draumi sem ég fékk þann 25.mars síðastliðinn vegna þess að þetta er greinilega guðdómlegur draumur þar sem margt af þessu hefur ræst.  Mig langar að taka það fram að þegar ég setti drauminn inn á síðuna þá fannst mér Drottinn tala til mín varðandi drauminn og það sem á undan hefur gengið.  Njótið vel. 

Til að þið áttið ykkur á hversu stórkostlegur Guð er langar mig að segja að við sem vorum á mótinu síðustu helgi fengum árás frá Satan, tvær bílveltur.  Það besta er að allir komumst lífs af og hlutu aðeins skrámur.  Það var greinilega englavernd sem fylgdi okkur og ótrúaðir gátu ekki trúað sínum eigiin augum.  Guð er svo góður og trúfastur. 

Draumur + Spámannlegt Orð

Guð blessi ykkur

Guðbjörn

PS.  Það verður spurningakeppni sem kallast Völvufell Open og það er fyrir alla þá sem vilja vera með.  Hún verður eftir tvær vikur og spurningarnar verða úr Hebreabréfinu þannig ég hvet ykkur til að lesa Hebreabréfið vel og vandlega.  Sendið mér á E-mail ef þið viljið vera með á gbjorn@simnet.is.  Keli mun vera spyrill og mun búa til spurningarnar.  Berglind mun vera stigavörður.  Og svo verða einhverjir keppendur. 


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2006 09:22:07 / gbjorn

Ný og betrumbætt vefsíða

Eins og margir taka kannski eftir þá hef ég breytt vefsíðunni meðal annars komið með nýjan lit, sem ég vil kalla lit himinsins.  Ég hef einnig fært allar prédikanirnar sem ég skrifaði þegar ég var ungur í trúnni.  Annað sem þið takið kannski eftir eru dálkar sem heita "spámannleg orð" og "kennslur og opinberanir."  Þar mun ég koma með þau orð sem Guð mun leggja í hjörtu mín í framtíðinni.  Það eru nú þegar komin nokkur af þessu en eins og stendur er ég að vinna að kennslu um blóðið sem rann á Golgata.  Það eru aðeins tveir hlutar af þeirri kennslu.  Eftir það mun ég klára kennsluna um Heilagan Anda sem verður í fimm pörtum.

Guð blessi ykkur

Guðbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:59:35 / gbjorn

Tungan

Ó hve tungan getur sært

orðin sem koma frá vörunum.

eins og eldur sem getur brætt

allt með svörunum. 

Varist að nota tunguna á rangan hátt

því að orðin hafa mátt

ó hve það getur verið sárt.


En gleðin er gulls í gildi

enda ætti hún að vera okkur skjöldur

Fyllumst gleði Drottins

og syngjum ljúfa sálma.

Ástin getur verið sterk

en kærleikur Guðs er það sem gildir.

Ástin kemur og fer

en Kærleikur Guðs stendur að eilífu.


Efesusbréfið 4:29-31

29. Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni, heldur það eitt, sem er gott til uppbyggingar, þar sem þörf gjörist, til þess að það verði til góðs þeim, sem heyra.
30. Hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins.
31. Látið hvers konar beiskju, ofsa, reiði, hávaða og lastmæli vera fjarlægt yður og alla mannvonsku yfirleitt.
Guðbjörn

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.03.2006 08:48:55 / gbjorn

Blóð Jesú Krists P2

Sæl öll sömul

Njótið vel :) --> Partur tvö er staðsettur neðst í vinstra horninu.

Guðbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 03:50:59 / gbjorn

Er andvaka!!

Þar sem ég er andvaka þá ætla ég aðeins að skrifa um sjálfan mig og fann nokkuð skemmtilega hluti svo við skulum byrja.

Ég hef.......

( ) reykt sígarettu
(  ) klesst bíl vinar/vinkonu
(  ;) stolið bíl (foreldranna)
(X) verið ástfangin/n
(  ) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(  ;) verið rekin/n
(  ) lent í slagsmálum
(  ;) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum.
(X) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
(  ) verið handtekin/n
(  ) farið á blint stefnumót
(X) logið að vini/vinkonu
(   ) skrópað í skólanum
(  ) horft á einhvern deyja
(  ) farið til Canada
(  )  farið til Mexico
(X) ferðast í flugvél
(  ) kveikt í mér viljandi
( ) skorið mig viljandi
(  ) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(X) farið á skíði (sem sagt í snjó)
(X) hitt einhvern sem ég kynntist á internetinu
(X) farið á tónleika
(X) tekið verkjalyf
(X) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(X) legið á bakinu úti og horft á skýin
(X) búið til snjóengil
(   ) haldið kaffiboð
(X) flogið flugdreka
(   ) byggt sandkastala
(X) hoppað í pollum
(   ) farið í "tískuleik" (dress up)
(   ) hoppað í laufblaðahrúgu
(X) rennt þér á sleða
(X) svindlað í leik
(X) verið einmana
(   ) sofnað í vinnunni/skólanum
( ) notað falsað skilríki
(X) horft á sólarlagið
(X) fundið jarðskjálfta
(  ) sofið undir berum himni
(X) verið kitluð/kitlaður
(  ) verið rænd/rændur
(X) verið misskilin/n
( ) klappað hreindýri/geit/kengúru
( ) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
(  ;) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(X) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm
(X) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(  ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(X) dansað í tunglskininu
(X) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(X) efast um að hjartað segði þér rétt til
(  ) verið gagntekin/n af post-it miðum (þið vitið - þessum gulu)
(  ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(  ) verið týnd/ur
(X) synt í sjónum
(X) fundist þú vera að deyja
(X) grátið þig í svefn
(X) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(X) sungið í karaókí
;) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum (við erum að tala um krónur, fimmkalla og tíkalla hérna)
(X) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
( ) hringt símahrekk
(X) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(X) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(X) dansað í rigningunni
(X) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
(X) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(X) blásið sápukúlur
( ) kveikt bál á ströndinni!
(X) komið óboðin/n í partý
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
;) farið á rúlluskauta/línuskauta
( ) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
(X) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

Ég vona að þið njótið þess ;)

Guðbjörn


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.11.2005 22:14:05 / gbjorn

Dýrð sé Guði!!

Komið þið sæl og blessuð

Fyrsti parturinn af kennslunni um Blóðið er kominn inn á bloggsíðu mína.  Ég hvet alla til að lesa það og megi Guð blessa ykkur ríkulega.  Verið tilbúin því partur tvö er á næsta leyti. 

Guð blessi ykkur

Guðbjörn


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.11.2005 19:36:21 / gbjorn

Hvað er að gerast í lífi mínu

Komið þið sæl öll sömul

Nú hefur Biblíuskólinn byrjað og tekið til starfa fyrir þetta árið og stefnan er að fara til Pakistan í trúboð.  Við höfum verið að afla fjár fyrir þeim hlutum og munum halda því áfram.  Byrjunin á skólanum var frekar erfið en Guð er góður og hefur gefið mér algjöra fullvissu að ég er á þeim stað sem hann vill að ég verði á allavega á þessum tíma.  Drottinn hefur verið mjög góður og mig langar að uppörva ykkur á þessu með því að segja að það fara að koma kennslur og opinberanir um þá spámannlegu veröld sem Guð hefur gefið okkur.  Meðal annars er á döfinni kennslur um:

Heimsókn Drottins

Málleysisandi og daufi andi= Dumbi andi ---> Markús 9:25

Dýrð Drottins (Jesaja, Esekíel, Daníel, Opinberunarbókin)

Himneskar verur (kerúbar, serafar og englar)

Að heyra rödd Drottins

Hindrun kraftaverka

Tengingin á milli þekkingar og speki

Dýrðarský Drottins Jesú Krists

Spámannlegt trúboð í týndum heimi

Frá dýrð til dýrðar

Jesús Kristur, Hvernig líturðu út?  (Mínar persónulegu reynslur með Jesú Kristi)

Hvernig kom syndin í heiminn?

Viltu fá dýfingu í nærveru Guðs?

Heilagur Andi, hvernig getum við unnið saman?  Þú ert heilagur en ég ekki.  (Nokkur atriði um heilagleikann)

Opin himinn

........ og margt fleira

Guð blessi ykkur

Guðbjörn


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.11.2005 00:17:00 / gbjorn

Hver er Heilagur Andi?

 

 

Kæru vinir, bræður og systur í Kristi Jesú

Til að byrja með þá hefur mér verið falið að skrifa part 1 fyrir jól sem fjallar um hver Heilagur Andi er. Það eru nokkur atriði sem ég vil benda ykkur á og gefa ykkur fyrir þessi jól. Ég vil nota það sem Drottinn hefur gefið mér og ég mun svo setja allan pakkann saman undir einn link sem kallast Heilagur Andi. En til að byrja á þessum pistli þá ætla ég að spurja okkur mikilvæga spurningu. Hver er Heilagur Andi? Það er margt sem fólki dettur í hug þegar viðkomandi fer að skoða þessi mál. Ég ætla að gefa ykkur upplýsingar um hver Hann er í raun og veru. Og ég ætla að koma með nokkrar reynslur til að upphefja Jesú Krist. Þessi pistill er í raun og veru 5 parta pistill. Titlarnir eru svohljóðandi: Hver er Heilagur Andi?, Hvað gerir Heilagur Andi, Gjafir Andans, Ávöxtur Andans og Hvað gerist þegar við tökum á móti Heilögum Anda. En við skulum snúa okkur að parti 1 af 5 í þessum pistli.

Það eru margir sem halda að Heilagur Andi sé einhver kraftur og ekkert annað en það. Það eru margir sem telja Heilagan Anda vera minni heldur en Guð Faðirinn og Sonurinn. Það sem ég vil koma með hér er það að Heilagur Andi er jafn Guð föðurnum og syninum. Það er enginn mismunur. Heilagur Andi er Andi Guðs og Andi Jesú. Til að sýna fram á það eru hér tvær ritningar!!

1.Mósebók 1:1-3

1. Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
2. Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Guðs sveif yfir vötnunum.
3. Guð sagði: Verði ljós! Og það varð ljós.


Postulasagan 16:7

Og sem þeir voru komnir að Mýsíu, reyndu þeir að fara til Biþýníu, en andi Jesú leyfði það eigi.


Eins og við sjáum hér er enginn mismunur á Anda Guðs og Anda Jesú -- (Ég mun tala um það í næsta pistli þar sem ég mun fjalla um verk Heilags Anda). Heilagur Andi er persóna eins og Jesús Kristur var þegar hann gekk um á jörðunni. Heilagur Andi er ekki bara einhver kraftur sem kemur frá einhverju æðra heldur er hann persóna. Einnig vil ég taka það fram að Heilagur Andi er Guð. Hann er jafnmáttugur, Hann er jafn Föðurnum og Syninum. Jesús talaði mikið um Heilagan Anda og það eru gefnir heilir 3 kaflar í Jóhannesarguðspjalli sem fjallar um hann. Drottinn Jesús er sá sem hann er. Og það sem Jesús talaði, ætti að vera fjallað meira um á meðal þeirra sem eru trúaðir. Biblían talar mikið um fyrirheiti sem Drottinn gefur og þar á meðal er eitt fyrirheiti sem tengist Heilögum Anda.


 

Postulasagan 1:4

Er hann var með þeim, bauð hann þeim að fara ekki burt úr Jerúsalem, heldur bíða eftir fyrirheiti föðurins, sem þér, sagði hann, hafið heyrt mig tala um.


Fyrirheiti Föðurins var að lærisveinar Jesú Krists myndu íklæðast krafti frá hæðum. Og þegar fyrirheitið var gefið á hvítasunnudag þá gerðust margir óskiljanlegir hlutir eins og fólk byrjaði að tala tungum. Margir héldu því fram að lærisveinarnir væru drukknir af víni vegna þess sem var að gerast. Heilagur Andi kom yfir lærisveinana og þeir voru þá skírðir í Heilögum Anda í gegnum eld og kærleika. Og það sem Drottinn talar stendur enn í dag því Drottinn breytist ekki að eilífu. Heilagur Andi er raunverulegri en ég og þú í dag. Ég vil taka það fram að Heilagur Andi upphefur Jesú Krist frá Nasaret sem dó og reis upp frá dauðum. Ég hef komist líka að því í gegnum Orð Guðs að Heilagur Andi hefur tilfinningar eins og ég og þú. Allar persónur hafa tilfinningar og þar á meðal Heilagur Andi. Það er hægt að gleðja Heilagan Anda og einnig meiða. En ef við gerum það meðvitað að meiða Heilagan Anda þá mun hann snúast gegn okkur og fara frá okkur. En ef við gerum það ómeðvitað þá mun Hann benda okkur á það. Ef við lastmælum Heilögum Anda meðvitað og af illu ráði þá er ekki afturkvæmt segir Biblían. Jesús sagði að lastmæli gegn Heilögum Anda væri ekki fyrirgefið.

Markúsarguðspjall 3:28-29

Sannlega segi ég yður: Allt verður mannanna börnum fyrirgefið, allar syndir þeirra og lastmælin, hve mjög sem þeir kunna að lastmæla,
, en sá sem lastmælir gegn heilögum anda, fær eigi fyrirgefningu um aldur, hann er sekur um eilífa synd.


Jóhannesarguðspjall 16:13

En þegar hann kemur, andi sannleikans, mun hann leiða yður í allan sannleikann. Hann mun ekki mæla af sjálfum sér, heldur mun hann tala það, sem hann heyrir, og kunngjöra yður það, sem koma á.


Jósúabók 24:20

Ef þér yfirgefið Drottin og þjónið útlendum guðum, þá mun hann snúast gegn yður og láta illt yfir yður koma og tortíma yður, í stað þess að hann áður hefir gjört vel til yðar.


Efesusbréfið 4:30

Hryggið ekki Guðs heilaga anda, sem þér eruð innsiglaðir með til endurlausnardagsins.


Heilagur Andi þráir að eiga samfélag við okkur svo mikið að hann elskar okkur með afbrýði. Hann þráir að gefa okkur góðar gjafir og að nota okkur til að hjálpa öðrum. Hann elskar okkur svo mikið að hann grætur yfir okkur ef við vanrækjum hann. Til að gefa ykkur smá innsýn inn í kærleika Guðs þá vil ég skrifa eina reynslusögu sem ég varð fyrir að nóttu til.

Þetta gerðist klukkan 06:00 og ég var búinn að lenda í miklum bænaneyðum þessa nótt. Og skyndilega heyri ég Heilagan Anda gráta í herbergi mínu þegar ég var vakandi.

Hann grét og ég þekkti hann um leið, og ég spurði Heilagan Anda: Hvers vegna ertu að gráta? Grátur Heilags Anda var barnslegur og ég fann að honum leið ekki vel.

Heilagur Andi sagði: Fólk vanrækir mig, fólk þekkir mig ekki, Kristnir þekkja mig ekki. Það var smá pása og svo sagði Heilagur Andi við mig: Ég var sendur til þess að gera Jesú dýrðlegan!! Ég var sendur til að leiða fólk í allan sannleikann. Ég var sendur til þess að sannfæra persónu/r um synd, réttlæti og dóm.

Þegar Heilagur Andi sagði þessi orð þá fann ég fyrir mikilli auðmýkt. Og ég fann að Heilagur Andi er auðmjúkur. Svo sagði Heilagur Andi við mig: Hef ég ekki sagt, hryggið ekki Heilagan Anda? Án mín er engin upprisa, engin von, engin sannfæring. Það var fyrir Minn Kraft sem Jesús var reistur upp frá dauðum sagði Heilagur Andi. Hvernig get ég tekið kirkjuna dýpra ef Kristnir þekkja mig ekki? Mig langar að taka kirkjuna dýpra en þegar fólk vanrækir mig þá get ég ekki tekið hana dýpra.

Eftir smá tíma sagði Heilagur Andi við mig: Segðu frá!! Segðu bræðrum og systrum frá þessu, segðu fólki frá því sem Ég hef sagt þér. Kenndu hver ég er, sonur minn. Segðu öllum frá því sem ég sagði þér. Svo sagði Heilagur Andi við mig: Þegar þú prédikar, prédikaðu um Jesú og talaðu einnig um mig. Heilagur Andi sagði svo við mig: Ég hef gefið þér visku til þess að kenna fólki hver Ég er.

Og ég sagði við Heilagan Anda: Já, ég skal segja frá, ég skal segja bræðrum og systrum mínum frá þér, ég skal kenna þeim hver þú ert. Ég elska þig Heilagur Andi og ég vil ekki særa þig!! Ég skal segja fólki frá þér.

Ég fann til með Heilögum Anda þegar Hann sagði mér þessi orð og ég verð að gefa þér þessi orð því ég lofaði Heilögum Anda því. Þannig ég hvet þig svona í lokin að tala við Heilagan Anda því að Hann bíður eftir því að við höfum samfélag við hann. Það er þrennt sem Páll sagði að við þurftum að hafa. Þau eru eftirfarandi!!

2. Korintubréf 13:13

Náðin Drottins Jesú Krists, kærleiki Guðs og samfélag heilags andasé með yður öllum.


Drottinn blessi þig
Guðbjörn

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 14:17:08 / gbjorn

Hvernig lítur Guð á börn og unglinga??

Kæru bræður og systur í Kristi Jesú og vinir

Það eru miklir og stórkostlegir hlutir sem brenna á hjarta mínu í dag og eins og ég hef lofað, þá ætla ég að skrifa þá niður og ég bið þess að þið megið verða uppörvuð í Jesú Kristi. Guð hefur verið að sýna mér hvert hjarta Hans er gagnvart næstu kynslóð og mig langar að deila þessum hugsunum og innsýn fyrir það sem Guð er að gera í dag á meðal barna og unglinga. Hallelúja, við skulum byrja á því að ræða um það sem Guð þráir í dag.

Guð er að leita að fólki sem þráir að þekkja hann meir heldur en um hann. Drottinn Jesús vill að við þekkjum hann dýpra. Hann þráir að við elskum hann eins og um væri að ræða Brúður og Brúðguma. Hann þráir að vekja elskuna sína á hverjum morgni og heyra rödd brúðarinnar. Hann þráir að leyfa okkur að finna angan sína af ilmsmyrslum hans þegar Hann gengur um á samkomum og á meðal okkar(Ljóðaljóðin 5: 10-16). Hjarta hans þráir mest af öllu að við fáum að þekkja sár hans og þjáningar. Drottinn opnaði augu mín fyrir því hversu mikið hann þjáist þegar fólk vanrækir hann og þegar fólk segir nei við hann. Hann grætur þegar við hættum að setja hann í fyrsta sætið. Hann grætur yfir því þegar við segjum að hann sé ekki að vinna á meðal okkar. Hann grætur vegna þess við erum ekki með hugann við hann stöðuglega(Lúkas 19:41 og Jóhannes 11:35). Hann þráir að nota okkur á dýrlegan hátt en hann getur það ekki nema við göngum inn í þá hvíld undir vængjum hans þar sem við nálgumst hann í kærleikanum. Þegar við göngum inn í nærveru hans og hvíld þar sem við drekkum nærveru Guðs inn í líf okkar, þá verður það náttúrulegt fyrir okkur að byrja að vitna fyrir öðrum og sýna hver Guð er. Það tók mig langan tíma til að uppgötva þetta að sitja í skjóli hins hæsta og meðtaka nærveru Guðs og náð.

En þegar við göngum inn í hvíldina (Hebreabréfið 4:11-12) þá er eins og allt annað fjari út og við getum byrjað að meðtaka hjarta Guðs. Guð þráir mest af öllu að gefa af hjarta sínu. Mig langar að deila einni hugsýn eða hugljómun sem Guð gaf mér þegar ég var að biðja einn morguninn í Biblíuskólanum. Þannig var að ég var grátandi, með tárin í augunum vegna þess hversu mikið ég elskaði hann og elska hann. Enn í dag, þegar ég hugsa um þetta þá fæ ég tár í augun en þennan morgun var eins og ég lyftist upp í himininn og Jesús var þar. Hann gekk að mér og hélt á hjarta. Hann hélt á hjarta sem var hreint. Hjarta sem sló í takt við Hjarta Guðs. Hann kom og sagði við mig: Ég er að gefa þér hluta af hjarta mínu því þú hefur þráð það. Og svo rétti hann mér hjartað og ég tók utan um það og heyrði svo Drottinn Jesús segja við mig: Settu hönd þína á hjarta þitt sem og ég gerði og allt í einu fór ég að fá meiri sársauka gagnvart hinum týndu sálum sem vilja ekkert með Guð að hafa. Ég skrifa þetta því að þetta er tíminn í dag til að rísa upp í meiri krafti og kærleika en áður. Þetta er það sem Guð er að gera í dag. Hann er að vekja upp fólk sem gengur í krafti og er stöðug í kærleikanum.

Guð þráir ekki einungis að gefa okkur kraft Heilags Anda heldur einnig þráir hann að við eigum samfélag við Heilagan Anda. Hann vill gefa þér og mér meiri kraft en við þolum. En hann getur það ekki nema við beygjum okkur fyrir Jesú Kristi. Það má ekki vera neinn hroki eða stolt því það eyðir. Þess vegna þurfum við að ganga sem krossfest frammi fyrir heiminum(Galatabréfið 2:20). Við verðum að ganga í styrk Guðs og leyfa Guði að krossfesta okkar stolt og girndir. Við þurfum að gefa okkur á vald Guðs í einu og öllu.(Róm 12:1-3)

Hvernig tengist þetta börnum og unglingum?

Drottinn Jesús hugsar í kynslóðum. Drottinn Guð hefur köllun fyrir alla einstaklinga á þessari jörð. Drottinn vill úthella Heilögum Anda yfir næstu kynslóð barna sem er kynslóð nútímans. Börnin munu fara út um allt og bjóðast til að biðja fyrir öðrum börnum. Börn verða miklir stríðsmenn í Guðs ríkinu. Börn kalla á Guðs Ríkið. Drottinn er að kalla konunglega stríðsmenn og presta(Opinberunarbókin 1:6 + Efesus 6:10-18) sem eru tilbúin til að ganga alla leið. Guð er Guð Fórna. Ég er þá ekki að tala um fórnir í hinu náttúrulega heldur í hinu andlega. Við getum gengið að altari Guðs í dag og fórnað andlegum lofgjörðarfórnum og þakkargjörð. Það sem ég sé eru börn og unglingar fyllt af gleði Drottins, fyllt af Heilögum Anda. Ég sé börn og unglinga ganga meðfram fólki og fólkið mun falla fram fyrir Drottni Jesú. Drottinn Jesús mun láta börn og unglinga skína í myrkrinu eins og Jóhannes skírari skein frammi fyrir sinni kynslóð. Ég sé núna mikla djörfung og hugrekki koma yfir kynslóðina og þau munu prédika krossinn og upprisu Jesú Krist. Tákn og undur munu fylgja þessari kynslóð. Börn og unglingar heyra í Guði í dag. Drottinn er að mæta börnum og unglingum í draumum og vitrunum í dag. Hann er að undirbúa stríðsmenn sem eru núna í kirkjunni. Fólk sem mun verða heilt og þrá heilagleika Guðs yfir líf sitt. (Matteus 5:8 og Jesaja 35:8)

Guð blessi ykkur
Guðbjörn

» 0 hafa sagt sína skoðun

24.08.2005 13:57:02 / gbjorn

Biblíuskóli 2.ár

Hæ kæru bræður og systur í Kristi Jesú og einnig vinir :)

Nú er mál með vexti að ég er að fara á annað ár í Biblíuskólann MCI Hallelúja. Sumarið hefur verið mjög skrýtið og spennandi. Það hefur einnig verið fyllt af spennu sem ég get engan veginn lýst. Drottinn hefur og er að blessa mig með svo mikið af gjöfum sínum. Meðal annars hef ég fengið að leiða fólk til þess frelsis sem aðeins Guð getur gefið og enginn annar. Ég hef einnig fengið að biðja fyrir mjög mörgum sem mér finnst æðislegt. Núna er ég að plana allavega um 4 til 5 hluti fram í tímann. Ég þrái að sjá Guðs ríki á jörð , þá er ég ekki að tala um himnaríki. Ég er að tala um hið sanna ríki Drottins, þar sem illir andar eru reknir út, þar sem fólk læknast og svo framvegis, þar sem fagnaðarerindið um Jesú Krist er prédikað Hallelúja. Ég er mjög spenntur fyrir áframhaldandi framtíð sem Guð hefur áætlað fyrir líf mitt.

Guð blessi ykkur

Guðbjörn


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.08.2005 23:41:15 / gbjorn

Verið velkomin

Kæru bræður og systur í Kristi Jesú og einnig vinir Nú hef ég hér með stofnað annan vef þar sem ég mun koma með trúboð um Jesú Krist. Það verða margir skemmtilegir hlutir og verkefni sem eru framundan. Guð blessi ykkur Guðbjörn

» 0 hafa sagt sína skoðun